Líf Elísu, sextán ára unglings á Vestfjörðum, gjörbreytist á einni nóttu þegar hún heyrir tónlist berast frá hafinu. Tónlistin leiðir hana niður í fjöru, niður í undirdjúpin og að fjólubláu borginni.

Elísa dregst inn í háskalega atburðarás og kemst að því að hún er hluti af spádómi ævafornrar menningar á hafsbotni.

Er hún verðug þess að bera titilinn dóttir hafsins?

Nýr andstæðingur. Nýir bandamenn. Meiri máttur. Rúmu ári eftir ævintýrið í hafinu er Elísa skyndilega stödd í ókunnum heimi.
Þar kynnist hún fjórum ungmennum sem hafa svipaða krafta og hún. Gæslumenn grunnefnanna hafa verið kallaðir saman til að bjarga deyjandi heimi.

En tekst þeim ætlunarverk sitt?


Eftir hrakfarirnar í marmaraborginni standa Elísa og gæslumennirnir frammi fyrir krefjandi ferðalagi þar sem þau fara um gjörvallt landið.

Hættur leynast víða, sterkar tilfinningar krauma og ungmennin þurfa að taka erfiðar ákvarðanir. Lokaorrustan við steingyðjuna er framundan og örlög allrar Renóru hvíla á herðum þeirra.

En hvað mun slík orrusta kosta þau?


Um höfund

Kristín Björg er fædd í Reykjavík árið 1992. Hún er með BA og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Þrettán ára gömul skrifaði hún sína fyrstu skáldsögu, Dóttir hafsins, og er það fyrsta bókin í þríleiknum Dulstafir. Handritið lá ofan í skúffu í hartnær tólf ár þar til hún tók það upp að nýju eftir háskólanámið og endurskrifaði bókina. Kristín skrifar helst ævintýri og fantasíur enda voru það þannig  bækur sem kveiktu lestraráhugann hjá henni.

Mynd: Sunna Ben

Verðlaun og viðurkenningar

Dóttir hafsins:

Tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmennabókmennta árið 2020

Þriðja sæti Bóksalaverðlaunanna í flokki barna- og ungmennabóka árið 2020

 Bronsharpan:

Tilnefnd til Fjöruverðlaunanna í flokki barna- og ungmennabóka árið 2022

Valin besta barna- og ungmennabók ársins 2022 af bóksölum

Annað: 

Vorvindaviðurkenning IBBY fyrir framlag til barnamenningar árið 2023